Ný færslaLilja Unnur Ágústsdóttir

Well people ;) Veit þið hugsið núna : enn kemur hún með blogg ! haha :D

en já bara allt gott að frétta héðan, geðveikt gott veður hérna í dag:D
Ég og Sigga erum að fara til Frankfurt (í þýskalandi) á morgun , fáum íbúð þar sem fjölskyldan hennar á held ég, vonandi kíkjum við í dýragarðinn þar JEEE :D

og ég læt einn brandara fylgja hérna með ... enn og aftur er ég að stela af buddusíðunni :D haha :D

A very loud, unattractive, mean woman walked into Wal-Mart with her two kids, yelling obscenities at them all the way through the entrance.

Wal-Mart Greeter says "Good morning, and welcome to Wal-Mart. Nice  children you have there. Are they twins?"

The ugly woman stopped yelling long enough to say, "Hell no they ain't!  Oldest one's 9 and the other one's 7. Why the hell would you think they're twins? Are you blind, or just stupid?

"I'm neither blind nor stupid", replied the greeter. "I just couldn't believe you got laid twice."


Over and out ;)

jæjaLilja Unnur Ágústsdóttir

vika liðin og allt gott að frétta :D
Verð að koma með eitt myndband hérna sem er möst að horfa á ...þetta er alveg kast :D
Var að skoða síðuna hjá Fönnsu systirog vinkonum  og hún var með þetta í blogginu hjá sér hún systir mín :D

Ég hló og hló og hló og grenjaði og grenjaði ...þetta er rosalegt hahahahahahha :D

http://www.glumbert.com/media/laugh

Helgin búin :PLilja Unnur Ágústsdóttir

Kem hérna með enn eitt bloggið því allir eru að segja við mig ,,Tinna bloggar miklu meira en þú" !!!! jájá people ;)

Jæja þá er helgin búin...:D Var að passa Selmu litlu sætu á Föstudagskvöldið , hún er svo mikil mömmustelpa og varð ekkert smá sár þegar mamma hennar fór en þetta reddaðist ;) Var að passa til um 2 og þá komu Sigga og Ólöf að ná í mig og við skelltum okkur á Muko Muko, og þar voru Berglind, María og Sigrún í fullu fjöri, við vorum þar til eitthvað um 5-6 agalegt hvað maður heldur út, ég var driver ;)

Á laugardeginum fór ég á Skauta með fjölskyldunni, og haha já ég var frekar spennt því mér finnst svo gaman á skautum en þegar þangað var komið og ég fékk lánsskauta þá sé ég að það eru bara til svona kéllinga skautar (með tönnum) semsagt engir hokkískautar til leigu :S oó hvað á Lilja að gera hahaha jújú ég sætti mig við þessa skauta og reyndi hvað ég gat að skauta almenninlega á þessu en nei ég var bara eins og Þroskaheft belja á Svelli, "tennurnar" alltaf að þvælast fyrir mér og fara í ísinn !!!!!!!!!!!
og já ég kann bara á hokkískauta og tel mig vera helvíti góða á þeim hehe :D

Var svo hjá Siggu í gærkvöldi við horfðum á Hannibal og ég sofnaði allavega yfir henni ;) þreytt eftir skautana hehe :D

Er bara ennþá hjá Siggu sætu :D
Kemur meira seinna bæjó

Lilja Unnur SKAUTAMEISTARI

Luxembourg jeah :DLilja Unnur Ágústsdóttir

Frumleg fyrirsögn isnt it ;)

Góðann dag/gott kvöld :D

Ég verð nú að segja það að ég ætti að fá verðlaun fyrir að vera svona duglegur bloggari ;) haha ;) 
Allavega þá er allt gott að frétta, er búin að skipta um fjölskyldu, samdi ekki við hina, en það er allt í góðu :D
Nyja fjölskyldan er frábær, 3 stelpur, 9,11 og 4 ára :P
og svo eru hundur og köttur hérna... er með ofnæmi fyrir köttum en finn ekki fyrir þessum ketti þannig að það er í góðu :D


Ein ferðasaga...Ég,Sigga og ólöf ætluðum að fara í Intersport síðasta laugardag og já Sigga var að keyra ;)
og við áttum að beygja af hraðbrautinni þar sem stóð (á RISA skilti ) Hornbach en svo eftir solítinn tíma þá vorum við bara allt í einu komnar i Belgíu hahahaha :D þar sem Ikea er ...;) Góðar eða hvað??
Við snérum svo við og komumst ekki alveg strax á leiðiarenda þar sem við tókum vittlausa beygju og þannig gekk þetta yfir þangað til við loksins komumst í ikea og keyptum ekkert!!!! HAHA:D

en nóg í bili ...blogga nú aftur :D

ein góð af mér og Siggu haha ;)

JæjaLilja Unnur Ágústsdóttir

Jæja...kannski kominn tími á blogg :D
Úff búin að gera svo meget síðan síðast, en allavega þá er ég búin að fara í bio hmm já það var í hinu blogginu, og ég fór með Siggu í mallið, sem var fínt, HogM vá hvað þetta er æðisleg búð!!! svo fór ég niðrí bæ í aðra HogM! haha æðislegt ;)
Svo á laugardagskvöldið skelltum við perurnar okkur á djammið og út að borða og vá þetta var alveg æðislega gaman:D
Annars er bara allt gott að frétta, ég fór út að skokkka í dag ógeðselga dugleg;)
og svo er ég farin að keyra hérna og rata nú slatta;)

kv
Lilja unnur

Luxembourg :DLilja Unnur Ágústsdóttir

Jæja þa er maður kominn í Luxembourg og ég bý í Junglinster með fjölskyldunni minni sem heita Sigrún (mamman), Björn (pabbinn) og börnin heita Róbert og Eygló María :)
Æðisleg fjölskylda...

Kom hingað á mánudaginn... allar aupair stelpurnar komu þá held ég . vorum allavega nokkrar í flugvélinni. Ferðin gekk mjög vel fyrir utan það að ólöf gleymdi veskinu sínu  á íslandi haha ;) og á tímabili hélt ég að við myndum ekki finna helv rútuna sem við fórum með frá Frankfurt Hahn til Luxembourg ...
En Sigga snillingur fann þetta ;)
Er búin að prufa að keyra smá ,,, sem er fínt sko :D

Nokkrar aupair gellur fóru i bíó i gær og ég með og Sigga líka...Fórum á The holiday , Virkilega góð mynd ;) Jude law GOSH hvað hann er yndislegur ...


jæja ég er farin...ætlaði bara svona aðeins að láta vita af mér ;)

Lilja Unnur

Well, ætla að prufaLilja Unnur Ágústsdóttir

Góðann daginn...

Auglýsing

Innskráningar kubbur